Þá eru jólin liðin og áramótin, janúar að verða búinn, sem þýðir að ég er alveg að nálgast tvítugt, eða nánar tiltekið 3 febrúar En jólin voru góð, var bara róleg og löt mest allt fríið, gerði lítið annað en að sofa og borða, náði líka alveg að snúa sólahringnum við. Eg fékk margt flott í jólagjöf, man samt ekki helmingin svona þegar ég hugsa um það núna þannig ég ætla ekkert að fara telja það upp, en ég var rosalega ánægð með allt, og þá sérstaklega trönurnar mínar góðu frá mömmu og pabba. Áramótin voru æði, Róbert bró og family voru hjá okkur, borðuðum kalkún og fórum svo inn á Hauganes á brennu, fórum aftur á Dalvík og horfðum á skaupið og fórum út að horfa á flugveldana:) Svo kom Steini og við brunuðum inn á Akureyri í áramótaparty til Kötlu, Elvu og Óla. Það voru felst allir sem maður þekkti, og það var farið í sjallann svo um hálf 3 leytið.
Svo er maður fluttu aftur á vistina, ég og Margrét ákváðum að fara þangað aftur bara. Verð nú að viðurkenna að ég sakna svolítið að vera í íbúð og sakna að vera að leigja með Steina og Pétri...eeeen maður lætur sig hafa vistina í eina önn. Þetta er svo sem fínt, er í góðu herbergi með sér baðherbergi. Skólinn gegnur vel, get samt ekki sagt að ég sé komin alveg í skólagírinn, þetta er svo róleg önn hjá mér, allavega hingað til... er í öllu próflausu nema einu fagi, sem þýðir bara eitt lokapróf í vor:) oooog svo útskrift, næææs! Er að fara á fullt með lokaverkefnið mitt í myndlistinni. Er að fara gera ljósmyndunarverk, komin með módel og ætla að farða og greiða þeim, og taka myndir:) Verður geggjað held ég, hlakka allavega mjög til að sjá útkomuna:) Svo verða bara allir að mæta á listasýninguna sem við krakkarnir í lokaáfanganum verðum með í vor, ljósmyndunarverkið mitt verður þar :) Svoo fyrst ég er að tala um svona, þá verð ég eins og alltaf að teikna mínervumyndir, þannig að þeir sem vilja að ég teikni fyrir sig endilega latið mig vita sem fyrst:) Var einmitt að byrja að skissa mína mínervumynd í dag, og það sem er komið lítur bara nokkuð vel út, ákvað að teikna mína mynd sjálf frekar en að vera borga öðrum fyrir eitthvað sem ég get gert sjálf haha:)
Ég get ekki beðið þar til á morgun, Margrét fer í síðasta prófið sitt í fyrramálið sem þýðir að mér hættir loksins að leiðast...MA-ingar eru búnir að vera í próftíð...ég er búin að liggja upp á herbergi að horfa á Supernatural þættina, Margrét lánaði mér 3 seríur svo ég mundi nú ekki alveg drepast úr leiðindum, og þessir þættir björguðu mér alveg, náði að klára 3 seríur á tveimur vikum held ég hahahah:D
En jæja þetta er orðið gott í bili :)
21. janúar 2009 klukkan 19:19
Anna Björg Þorvaldsdóttir 2 athugasemdir
Þá er ég búin í prófum, gekk bara nokkuð vel og er mjög sátt við einkunnir, nema hvað ég féll í ensku! Ég sem hef alltaf fengið svo háar enkunni í ensku! Og mesta anskotans vitleysan var sú að ég var sökum um FOKKING svindl! Já, ÉG!! Tek það samt skýrt fram að ég svindlaði EKKI, það er eitthvað sem ég tel vera fyrir aumingja...En neinei, ég var kölluð inn á skrifstofu og tilkynnt það að ég væri sökuð um svindl og þau ætluðu að fella mig fyrir það, sama hvað ég sagði þeim að ég mundi aldrei í lífi mínu svindla þá kom bara skítaglott á þau! Sögðu bara að svörin mín á prófinu hefði verið "of" rétt...ég hélt að það væri nú bara gott að hafa rétt svör! Ég var brjáluð! Svo seinna um daginn var hringt í mig og sagt að það yrði ekkert úr þessu þar sem þau hefðu engar sannanir í höndunum ( REEAAALLY!! ) og svo var sagt " við skoðuðum fyrri einkunnir þínar í ensku og þær eru mjög góðar, þú þarft ekkert að hafa áhyggjur af þessu lengur með enskuna, þú er búin að ná" ....neinei er ég svo ekki bara felld, anskotinn hafi það! Það er alveg greinilegt að ég læri ekki mikið undir næsta próf sem ég fer í, ef maður verður sakaður um svindl fyrir að vita of mikið!!!!!!!!
En jæja nóg um þetta bull....núna er bara ein önn eftir og svo útskrift...! Get samt ekki sagt að ég sé komin í jólafrí, er búin að vera vinna á Gallup síðan ég kláraði prófin, jább, ég fékk vinnuna þar aftur, sem er fínt, fá smá auka pening :) Fer svo í almennilegt jólafrí 22 des. og þá fer ég heim á Dalvíkina góðu:) Það er svoooo stutt í jólin....:D
En svo eftir áramót verð ég ekki lengur íbúi í Hafnarstrætinu býst ég við, ef allt gengur upp þá flytjum við Margrét á vistina, ótrúlegt en satt. Ýmsar ástæður fyrir því, og ég held það verði bara fínt að koma þangað aftur,fáum báðar stórt herbergi með baði á gömlu vistinni. Væri alveg til í að vera leigja lengur samt, það er svo gaman, og miðað við hvað ég hef mikið blótað þessari vist, finnst mér virkilega furðulegt að ég sé að fara þangað aftur, eeeen svona er þetta;)
Svo er Margrét farin heim til sín í jólafrí og Steini líka, þannig ég og Pétur erum bara ein heima þessa dagana, bæði að vinna. Voðalega tómlegt og hljótt allaf í íbúðinni nuna haha:D Annars er voðalega lítið búið að vera gera hjá mér, fór í afmæli í kvöld til Ingu minnar;) og er bara buin að vera þræða búðirnar og versla jólagjafir og svona, hef samt ekki enn náð að finna mér jóladressið...
En allavega, efast um að ég bloggi eitthvað meira fyrir jólin, þannig ég segi bara Gleðileg jól núna;) hahaha
20. desember 2008 klukkan 02:49
Anna Björg Þorvaldsdóttir 2 athugasemdir
Ég er á lífi, þótt að lítið hafi verið um blogg...held ég sé að gefast upp að hafa bloggsíðu haha.
En annars þá ætla ég bara rétt að láta vita af mér. Er byrjuð í prófum, fór í fyrsta í dag sem var ísl403 fjarnám, svo er bara enskan, sagan og myndlistasagan eftir, það verður pís of keik;) Allt gegnur vel hérna í Hafnarstrætinu hjá okkur fjórmenningum, og í skólanum líka, hlakka samt svolítið til að fara í jólafrí, verður fínt að fá smá frí:)
Og í dag btw, þá eru akkúrat 2 mánuðir þangað til ég verð tvítug þakka þér fyrir pent! Gamla kellingin bara verða tvítug;) Og svo í maí fæ ég stúdentshúfuna og læti bara:D allt að ske.
Er svona eiginlega búin að ákveða hvað ég ætla að gera eftir VMA, ætla náttúrulega að vinna í alavega eitt ár, safna smá pening, svo ætla ég í Snyrtiakademíuna og læra snyrtifræðinginn! Vað að skoða það nám um daginn og leist bara helvíti vel á það, þrátt fyrir að það sé mjööög dýrt er ég að spá í að skella mér í þetta. :)
eeen heyrðu...segjum þetta gott! Bæææææ
03. desember 2008 klukkan 23:53
Anna Björg Þorvaldsdóttir 2 athugasemdir
Jæja, ákvað að setja inn eitt stykki blogg svona fyrst eg hef akkúrat ekki neitt að gera. Er búin að vera svo dugleg i dag, skóli, beint heim að læra, fór í próf í fjarnáminu, lagaði til , ryksugaði mest allt húsið og hjálpaði Möggu og Hörpu smá að baka;)
Annars þá er ég komin í 23 einingar núna, held ég...kannski meira er ekki viss. Bætti við mig smá auka áfanga, duglega ég...þannig núna er ég í skólanum frá 8 til 7 um kvöldið á miðvikudögum og fimmtudögum næstu tvær vikurnar...Þetta er bara svona stutt "námskeið" samt áfangi, erum að þrykkja á boli og læra allt um liti og efni í sambandi við það...Þannig bráðum fer ég að ganga í bolum skreytta eftir sjálfa mig;) haha Skemmtilegt að segja frá því að ég er fokking klaufi í þessum tímum maður. Þannig var að ég er sko nýýbúin að fara í klippingu til Elvu, og var svo í þessum tímum á miðvikudaginn og var að nota hárblásara til að láta rammann minn þorna fyrr...beygjði mig eitthvað aðeins til að tjékka hvort hann væri til, neinei, flækti ég ekki bara hárið í þarna viftunni aftan á blásaranum og kennarinn þurfti að klippa lokk úr hárinu á mér til að losa mig:( er ekki sátt... Svo var ég að skera út munstur til að setja í rammann, skar mig feitt á dúkahnífnum...Svo þegar ég kom heim, þá var ég eitthvað í möggu herbergi og fékk ógeðslega stóra flís í stóru tánna....YAY:D
Svo gerir maður mest lítið annað en að læra og vera í skólanum, og vinna stökum sinnum...þótt það fari nú eitthvað að minnka á næstunni, Gallup er eitthvað í ruglinu, fáum ekki fleiri en 3 vaktir á viku nuna og stundum ekki einu sinni það. Það mega bara vera 10 á vakt í einu og eitthvað, samt alveg pláss fyrir yfir 30 manns held ég. En það er svo sem í lagi, ég fæ þá bara meiri tíma í lærdóm og svona....svo fer ég nottlega að fara á fullu að teikna karmínumyndir...Hafdís gamla bekkjarsystir hringdi í mig og spurði hvort hún mætti auglýsa mig í MA að ég gerði karmínur;) og ég sagði nottlega bara já...fá sma auka pening. 5000 kr myndin...sem er eiginlega ekki neitt verð miðað við hvað sumir eru að rukka fyrir þetta...
...eitthvað meira...Já, fór til Reykjavíkur um helgina með Önnu og Elvu, fengum langa helgi í skólanum, frí bæði föstudag og mánudag...ég gisti hjá Ingu, sem var stuð, verslaði mér smá og svona;)...í kreppunni hahaha! talandi um það...djöfull sem ég er komin ógeð af þessu orði...
held ég hafi ekki mikið meira að segja... ætla skella bráðum myndum inn frá myndlist, er að gera HUGE málverk í skólanum og er komin soldið langt með það...samt hellingur eftir...:D held það verði bara nokkuð töff...spurning hvort maður selur það þegar það er til...Eða hvort maður eigi það bara sjálfur, þar sem þetta er svona fyrsta alvöru málverkið;)
en ætla fara spjalla aðeins við stelpurnar...þarf svo að fara taka mig til, ætla á Dalvík í kvöld, þarf að sækja mömmu út á flugvöll og skutla henni heim...kjéllan var í Reykjavík að passa Rut.
bbbææææææ
17. október 2008 klukkan 17:45
Anna Björg Þorvaldsdóttir Engin athugasemd
já sæll! Ég er alls ekki sátt...langar helst bara til að gubba. Afhverju þarf að byrja snjóa núna, ég er svo alls ekki game í þetta drasl. Fæ bara hroll við tilhugsunina að þurfa byrja daginn á að hita bílinn og skafa. oooojjj. og á meðan þessi ljóti kuldi er hér, þá er Margrét bara að spóka sig í Danmörku, litla kellingin bara á Strikinu að versla...kemur svo bara heim í snjóinn, múhahaha!!
Annars er bara allt gott í fréttum, ég er byrjuð að vinna á Gallup aftur, sem er fínt, fá smá auka pening. Svo er ég á fullu í skólanum og þá meina ég bókstaflega fullu, er á kafi í heimavinnu og prófum og læti. Svo var mér sagt í gær að það væru bara 2 mánuðir eftir af skólanum fyrir próf, hvað er málið hahaha strax hálfnuð með önnina... Svo er ég alltaf í ræktinni, er búin að ákveða það að vera voðalega dugleg í vetur, borða hollt og hreyfa mig:P Er með svo mikla strengi í augnablikinu að ég get ekki hóstað eða hlegið, einhver leiðbeinandi á Bjargi lét mig gera einhverjar ljótar magaæfingar í gær á bolta, og shit það tók sko á.
Svo var frí á föstudaginn, og ég skrapp heim á Dalvík á fimmtudaginn eftir skóla, og váá hvað það var nú gott að komast heim, fá mömmu-mat og svona:D Svo er aftur frí á föstudaginn í næstu viku og mánudeginum eftir það, ég er að pæla að skreppa suður, Anna og Elva ætla með.
anyway, er að spá í að fara lesa eitthvað smá í Íslandsklukkum áður en ég fer að vinna, er víst að fara í próf í því í fjarnáminu :/
30. september 2008 klukkan 16:49
Anna Björg Þorvaldsdóttir 3 athugasemdir
Margrét, eins skemmtilega brigth í hausnum eins og hún getur verið, toppaði allt heimskulegt af heimskulegu sem hún hefur gert áðan. Þetta byrjaði þannig að hún var í Fjölsmiðjunni í gær að kaupa sér borð, en mundi ekki heimilisfangið okkar, til að bjarga sér ákvað hún að hringja í Pétur
Magga: hæ, hérna, hvað er heimilisfangið okkar. Pétur: éééég veit það ekki Magga: ha? veistu ekki hvar við eigum heima? Pétur: neeeii Magga: uuhh oookay.
Þegar ég kom heim úr skólanum hneykslaðist hún svo yfir því hversu skrýtið henni fannst að Pétur vissi ekki hvar við byggjum.
svo áðan vorum við í einhverjum vandræðum með playstation tölvuna og ákváðum að hringja í Pétur, fyrst hann á nú tölvuna...
Magga: hæ heyrðu við ætluðum að setja leik í playstationtölvuna Pétur: uu jááá? Magga: það kemursamt ekkert á skjáinn :/ Pétur: uuuu ég held að þú sért að tala við vitlausan Pétur sko....
hahahahaha Já...Magga er semsagt nuna buin að hringja tvisvar í Pétur Þóri, sem við þekktum á 1.ári í staðin fyrir Pétur Frey sem býr með okkur hahahha.
-Þetta var allavega fyndið áðan þegar við föttuðum þetta, láum í krampa í sófanum af hlátri....
En annars er allt í gúddí hér, Magga flutt inn, ég byrjuð í fjarnáminu og svoleiðis:) Erum að fara halda smá party hér á morgun, svona innflutningsparty fyrir mig og möggu bara, fyrst að strákarnir ætla að stinga af um helgina haha. Svo er það Palli í Sjallanum.... Svo er ég að fara taka þátt í tískusýningu á morgun...pínu kvíði í gangi, en hlakkar samt soldið til....er held ég næst elst í þessum hópi :o allar geggað ungar sem eru í þessu hahaha.
eeeeen allavega....erum bunar að hringja í réttan pétur til að hjálpa okkur með tölvuna.... þannig við ætlum að fara í playstation, vera nördar í smástund hahaha
later
12. september 2008 klukkan 17:40
Anna Björg Þorvaldsdóttir 1 athugasemd
jæja, þá er maður fluttur og búin að koma sér vel fyrir í íbúðinni minni góðu. Pétur og Steini komnir og Margrét kemur svo á sunnudaginn. Skólinn byrjaður, er í 19 einingum og er svo líka að taka 3 einingar í fjarnámi þar sem stundataflan min var svo pökkuð að ég gat ekki troðið meira...trúi ekki að ég sé á síðasta sprettinum í framhaldsskóla, bara þessi og næsta önn eftir. Okkur líkar bara nokkuð vel við íbúðina, kannski það eina er gólfið á ganginum, en það venst;) Maður er bara í hálf vandræðum með allt þetta pláss sem við höfum, sama hvað við setjum mikið af dóti það virðist alltaf vera svo mikið pláss eftir. Sérstaklega í mínu herbergi, er komin með slatta í það en það er samt svo tómlegt eitthvað. En þessir fyrstu dagar í skólanum eru bara bunir að vera frekar rólegir, ég og Steini vorum bara ein með alla íbúðina til að byrja með, Pétur stakk af til Tenerife að safna tani haha. Svo get ég bara ekki beðið eftir að Margrét mín komi norður til mín, verður fínt að fá aðra stelpu á heimilið hahaha.
Ég og Anna skruppum svo til Reykjavíkur þarsíðustu helgi, svona aðeins að komast í burtu áður en skólinn byrjaði alveg. Það var fín ferð, náði að versla mér aðeins, held ég hafi fundið stóru ástina í lífinu minu þegar ég labbaði inn í KISS fatabúðina...þessi stóra ást min er flík, sem ég veit eiginlega ekki hvað kallast, einhverskonar silki-sjal-dæmi viðbjoðslega flott sko! Kostaði líka sitt, en ég lét mig hafa það, þetta var einum og mikið æði til að labba frá þessu hahahaha:D
Síðasta fimmtudag var svo busun í VMA, ég náði að plata Heiði að koma vera böðull með mér, og við sáum sko alls ekki eftir því. Vorum í skólanum til að verða 6 á þriðjudaginn að undirbúa busunina, og vorum mættar svo 7 um morguninn til að græja okkur, fara í búninga og svona. Svo tók maður á móti krökkunum og píndum þau eitthvað. Létum þau dansa og svona í gryfjunni, við fórum svo niður í draugahús og komum okkur fyrir þar. Það var einum OF gott að vera þar, heyra allar þessar barbie-gelgjur dauðans öskra úr sér líftóruna hahahaha! Ein fór meira að segja að grenja þegar hun var á því svæði sem ég og Heiður vorum á. Margri komu meira að segja grenjandi út úr þessu draugahúsi hahahahaha! frekar fyndið.... Svo voru þau látin fara í bootcamp og þrautabraut með einhverju drullumalli, svo kom slökkviliðsbílinn og sprautaði á þau;)
en jæja, ég er svona að spá í að fara leggja mig. Er aaaðeins of þreytt. Ætla samt að sýna ykkur smá myndir af íbúðinni:D her er smá af minu herbergi
mitt herbergi aftur
timbureldhúsið okkar...
stóra stofan okkar:D
minnsta herbergið í húsinu er baðherbergið...þvottahúsið er meira að segja stærra hahaha
Vildi ekkert vera fara æða inn í herbergi strákanna til að taka mynd haha og möggu herbergi er tómt þannig ég er ekki með myndir af þeim herbergjum;) hvernig finnst ykkur annars, þ.e.a.s þeir sem hafa ekki nú þegar komið í heimsókn og skoðað?
02. september 2008 klukkan 00:33
Anna Björg Þorvaldsdóttir 3 athugasemdir
Jææææja, Inga var farin að kvarta um bloggleysi hjá mér þannig ég ákvað að koma með eitt fresh blogg hérna...
Margt búið að ske síðan ég bloggaði síðast...Þar á meðal þá gifti hann Róbert bróðir sig. Kallinn bara orðinn fullorðinn haha:D En það var geggjaður dagur, ég og Rut Marín vorum brúðameyjar og svona:D
Svo var versló, Magga kom norður, sem var geggjað:D Höfðum smá útlilegustemmingu og gistum í tjaldi í garðinum hjá Pétri og Steina. og Inga pinga slinga minga kom líka norður....skipa henni bara hér með að flytja aftur norður og koma í VMA, I neeeed you there!!!
svooo helgina eftir það voru Fiskidagar, gaman að því... Fiskisúpurölt á föstudeginum með Jónu, Danna, Fjólu, Elsu, Antoni og Önnu... Bryggjan á laugardeginum, og 89-reunion um kvöldið, gaman að sjá alla krakkana aftur:D Svo var bara farið á flugveldasýninguna og e-h skemmtilegt.
Og svo nuna, þá er ég hætt að vinna, síðasti vinnudagurinn var á föstudaginn. Svo er skólinn bara að byrja á miðvikudaginn, verð að viðurkenna að mér hlakkar smá til. Hitta alla aftur og svona. Svo nottlega hlakka ég ennþá meira til að flytja inn í íbúðina mina. Það verður skrautlegt að sjá hvernig það verður, held að ég endi í húsmóðurshlutverkinu hahaha:D Ég hef allavega góða þjálfun í að taka til og elda ofan í fólk eftir sumarstarfið mitt hahaha:D
En jæja, neeenni ekki að blogga meira nuna, kem með eitt djúsí og flott þegar ég verð flutt inn í höllina mina inn á Akureyri, tek svo myndir og svona af íbúðinni til að setja herna inn svo þið fáið að sjá hana...;)
geggjuð mynd af okkur systkinunum, sjáið himininn:D
bleeeeeeessss
17. ágúst 2008 klukkan 23:27
Anna Björg Þorvaldsdóttir 9 athugasemdir
soldið síðan ég gerði eitthvað vitlegt herna síðast... Annars er alltaf sama sagan af mér...vinna vinna vinna... nema jú....ég er orðin RAUÐHÆRÐ:D geeeðveikt flott að vísu sko...ELva litaði mig um daginn, hún fékk að ráða smá hvað hun gerði, setti svona ljósar strípur í öðru megin á hausnum, þannig það kemur svona undan rauða litnum einhvervegin...helvíti töff sko, var ekkert smá ánægð með þetta...losnaði líka við svona 10 kg af hári af hausnum, hún þynnti það svo heeeeavy mikið...eftir klippinguna var eins og það lægi hundur við hliðina á mér, þetta var heilt fjall af hári....
Svo skruppum ég, Anna og Elva á LungA um helgina, rosa fin helgi það... Nema veðrið á föstudaginn var frekar fúlt...sváfum afskaplega lítið þá nóttina allavega fyrir kulda, var í náttbuxum, bol, jakka, með hettu, í svefnpoka, með teppi og smá af sænginni hennar önnu, allt breitt upp fyrir haus en samt var ég gjörsamlega að krókna úr kulda...svo toppaði það alveg að það voru einhverjir gaurar með tónlistina í botni til kl svona 6 eða 7 um morguninn OG annar þeirra meig utan í tjaldið :O ooojjj það var pissupollur á tjaldinu daginn eftir...pínu fyndið en halló! hver mígur utan í tjald? ertu hundur eða? En laugardagurinn var góður, röltum bara um bæinn, skruppum í ljótustu sundlaug í heimi haha, fórum svo að tjörninni og láum þar í grasinu í sólbaði, grilluðum svo og svoleiðis...tímdum varla að fara heim á sunnudaginn, það var svo sjúkt veður maður!! Á heimleiðinni kíktum við aðeins á Jónu og Danna í vinnuna upp í Lóni...sakna þeirra svoooo
Svoooo er það alveg ákveðið að ég og magga verðum ekki á vistinni, ákváðum að borga ekki staðfestingagjaldið...sem þýðir að nu fer allt á fullt að finna íbúð. Ætlum að leigja með Pétri og Steina, er einmitt að fara á morgun með Steina að skoða eina íbúð;)
það styttist svo í brúðkaupið hjá honum Róbert bróður og Önnu Lilju...bara 4 dagar...Og ég ekki enn buin að finna gjöf...fann samt eitt heavy flott í dag sem ég er mikið að spá í að taka:D Jájájá, Rut er svo mikil dúlla, fórum fram í sveit í gær og hun vildi sko strax sýna mér prinsessukjólinn sem hun ætlar að vera í á laugardaginn, verðum sko algjörar gellur saman að labba inn kirkjugólfið:D OOOOG ég fæ að vera á myndavélinni hans Róberts í veislunni, sem er btw svona alvöru myndavél, ooo ég held ég eigi ekkert eftir að láta hann fá hana aftur...langar svo í svona myndavél, er bara sjúk sko...slefa þegar ég held á svona vél liggur við!!
jájájjájá svo vil ég minna 89 árgangsfólkið á dalvík að skoða þessa síðu --> www.dalvik89.blogcentral.is Það verður smá árgangshittingur laugardagskvöldið um Fiskidagshelgina....bara allir að mæta;)´þótt fólk var bara með okkur í bekk eitt ár í yngri bekkjunum eða eitthvað. Þetta verður semsagt soldið stórt reunion:D
en ég ætla segja þetta gott....ætla fara sofa...þarf að vakna kl 6 í fyrramalið til að fara vinna:S
23. júlí 2008 klukkan 01:01
Anna Björg Þorvaldsdóttir 4 athugasemdir
07júlí
jæææja góðann daginn!
Er að reyna drepa tímann aðeins svo ég ákvað að blogga bara. Eins og alltaf þá er nu ekkert mikið að frétta. Nema bara vinna, vinna, vinna... Fór til Reykjavíkur með Önnu um helgina, mjög fín ferð, gistum hjá Ingu og Magga elskunum...ég náði að verlsa mér tvennar buxur, bol og skópar og fyrir þetta allt borgaði ég heilar 3700 kr..! já það voru 50-70% afslættir út um allt...góóóóð kaup;)
svo eru mamma og pabbi stungin af í húsbílaferð og skildu mig eina eftir heima næstu þangað til næsta sunnudag held ég... úff og klaufar þau...kom heim í gær frá borginni, og það tók á móti mér líka þessi þvílika ýldu lykt þegar ég labbaði inn heima....ég var að spá, hvað í anskotanum þetta væri, opnaði alla glugga og hafði þá þannig þangað til í morgun...en lyktin var ekki farin...ég hringdi í mömmu og sagði henni frá þessu og hun sagði mér að gá inní geymslu hvort frystirinn væri ekki í lagi eða hvort þau hefðu kannski gleymt að setja eitthvað í frystirinn....jújú það var nu rétt hjá kjéllu...það voru tvo fiskiflök ofan á frystirnum...og lyktin var af því...frekar ógeðslegt, búið að vera þarna síðan á föstudaignn!!!
----------------
Svo í gær, 6. júlí hefði hún Harpa systir min átt afmæli... Hefði orðið 26 ára. Vá hvað tíminn líður hratt!
een ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...er að spá í að leggja mig í hálftíma áður en ég fer inn á akureyri að þrífa Ráðhúsið.....
07. júlí 2008 klukkan 15:27
Anna Björg Þorvaldsdóttir 1 athugasemd